1 00:00:20,300 --> 00:00:23,250 Komið þið sæl og verið velkomin í þennan aukaþátt ESOcast. 2 00:00:23,250 --> 00:00:27,730 Í aðdraganda 50 ára afmælis ESO í október 2012 3 00:00:27,730 --> 00:00:30,420 munum við sýna átta sérstaka aukaþætti 4 00:00:30,420 --> 00:00:35,520 um fyrstu 50 árin í rannsóknum ESO á suðurhimninum. 5 00:00:39,990 --> 00:00:43,750 Útbreiðslustarf 6 00:00:45,710 --> 00:00:48,830 Stephane Guisard dýrkar stjörnurnar. 7 00:00:49,880 --> 00:00:52,340 Ekki skrítið að hann hafi dálæti á norður Chile líka. 8 00:00:53,390 --> 00:00:57,630 Hér er útsýnið út í alheiminn með því besta sem gerist á jörðinni. 9 00:00:59,170 --> 00:01:01,990 Því skyldi engan undra hvers vegna hann dýrkar Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli 10 00:01:01,990 --> 00:01:04,760 — auga Evrópu á himninum. 11 00:01:05,910 --> 00:01:09,450 Stephane er franskur verðlaunaljósmyndari og rithöfundur. 12 00:01:11,300 --> 00:01:15,180 Hann er líka einn af ljósmyndurum ESO. 13 00:01:19,980 --> 00:01:24,960 Glæsilegar myndir hans sýna vel afskekkta Atacamaeyðimörkina, 14 00:01:24,960 --> 00:01:27,890 fullkomna hátækni-risasjónauka 15 00:01:27,890 --> 00:01:31,730 og mikilfengleika næturhiminsins. 16 00:01:39,720 --> 00:01:43,240 Líkt og aðrir ljósmyndarar ESO út um allan heim 17 00:01:43,240 --> 00:01:46,720 hjálpar Stephane til við að breiða út boðskap ESO. 18 00:01:48,440 --> 00:01:52,320 Boðskap forvitni, undrunar og innblásturs, 19 00:01:52,320 --> 00:01:55,830 sem miðlað er í gegnum samvinnu og útbreiðslustarf. 20 00:01:59,000 --> 00:02:02,130 Samvinna hefur ætíð verið grunnurinn að árangri ESO. 21 00:02:02,500 --> 00:02:03,500 Fyrir fimmtíu árum 22 00:02:03,850 --> 00:02:05,340 tók Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli 23 00:02:05,630 --> 00:02:08,100 til starfa með stofnríkjunum fimm: 24 00:02:08,110 --> 00:02:12,350 Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi og Svíþjóð. 25 00:02:12,750 --> 00:02:15,180 Fljótlega fylgdu önnur Evrópuríki í kjölfarið. 26 00:02:15,500 --> 00:02:21,620 Danmörk árið 1967, Ítalía og Sviss árið 1982. Portúgal árið 2011. 27 00:02:21,620 --> 00:02:23,850 Bretland árið 2002. 28 00:02:24,790 --> 00:02:28,940 Síðasta áratug hafa Finnland, Spánn, Tékkland og Austurríki 29 00:02:28,940 --> 00:02:32,570 bæst í hóp stærstu stjarnvísindasamtaka Evrópu. 30 00:02:33,590 --> 00:02:37,150 Nú síðast varð Brasilía 15. aðildarríki ESO 31 00:02:37,150 --> 00:02:40,150 og fyrsta ríki utan Evrópu til að taka þátt. 32 00:02:40,570 --> 00:02:42,380 Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér? 33 00:02:43,400 --> 00:02:47,710 Saman tryggja aðildarríkin bestu mögulegu stjarnvísindarannsóknir 34 00:02:47,710 --> 00:02:50,730 í stærstu stjörnustöðvum heims. 35 00:02:56,160 --> 00:02:58,300 Og þátttakan er góð fyrir efnahag þeirra líka. 36 00:02:59,240 --> 00:03:03,730 ESO starfar náið með iðnaði í Evrópu og Chile. 37 00:03:14,650 --> 00:03:17,050 Vegir hafa verið lagðir. 38 00:03:17,900 --> 00:03:19,810 Fjallstindar jafnaðir. 39 00:03:21,300 --> 00:03:24,370 Ítölsku iðnaðarsamtökin AES 40 00:03:24,370 --> 00:03:28,560 byggðu aðalmannvirki VLT sjónaukanna fjögurra. 41 00:03:28,560 --> 00:03:33,620 Hver sjónauki vegur um 430 tonn. 42 00:03:35,320 --> 00:03:41,160 Samtökin smíðuðu líka risahvolfin í kringum þá, hvert á stærð við tíu hæða byggingu. 43 00:03:43,940 --> 00:03:48,910 Þýski glerframleiðandinn Schott bjó til hina viðkvæmu spegla VLT 44 00:03:48,910 --> 00:03:53,360 sem eru meira en átta metra breiðir en aðeins tuttugu sentímetra þykkir. 45 00:03:54,820 --> 00:03:56,280 Í REOSC í Frakklandi 46 00:03:56,280 --> 00:04:01,020 voru speglarnir slípaðir með nákvæmni upp á milljónasta úr millímetra, 47 00:04:01,020 --> 00:04:04,270 áður en þeir voru sendir í langferðina til Paranal. 48 00:04:09,460 --> 00:04:13,170 Á meðan þróuðu háskólar og rannsóknastofnanir í Evrópu 49 00:04:13,170 --> 00:04:16,829 ljósnæmar myndavélar og litrófsrita. 50 00:04:18,829 --> 00:04:21,500 Sjónaukar ESO eru byggðir fyrir fé skattgreiðenda. 51 00:04:21,500 --> 00:04:22,600 Þína peninga. 52 00:04:23,000 --> 00:04:25,740 Þess vegna getur þú tekið þátt í veislunni. 53 00:04:26,260 --> 00:04:31,050 Til dæmis eru heilmiklar stjarnfræðiupplýsingar á vef ESO, 54 00:04:31,050 --> 00:04:34,650 þar á meðal mörg þúsund fallegar ljósmyndir og myndskeið. 55 00:04:37,070 --> 00:04:40,620 ESO gefur líka út tímarit, fréttatilkynningar 56 00:04:40,620 --> 00:04:45,340 og heimildarmyndir eins og þá sem þú ert að horfa á núna. 57 00:04:47,560 --> 00:04:49,180 Og út um allan heim 58 00:04:49,180 --> 00:04:55,000 leggur Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli sitt af mörkum til sýninga og vísindahátíða. 59 00:05:00,030 --> 00:05:04,630 Óteljandi leiðir til að uppgötva alheiminn! 60 00:05:06,770 --> 00:05:10,020 Vissir þú að VLT sjónaukarnir fjórir eru nefndir eftir 61 00:05:10,020 --> 00:05:12,450 uppástungu ungrar stúlku frá Chile? 62 00:05:13,360 --> 00:05:15,670 Hin 17 ára Jorssy Albanez Castilla 63 00:05:15,670 --> 00:05:20,790 stakk upp á nöfnunum Antu, Kueyen, Melipal og Yepun 64 00:05:20,790 --> 00:05:27,150 sem þýða sólin, tunglið, Suðurkrossinn og Venus í Mapuche tungumálinu. 65 00:05:28,490 --> 00:05:32,430 Mikilvægt er að fá nemendur eins og Jorssy til þátttöku. 66 00:05:33,950 --> 00:05:36,830 Þar koma menntaverkefni ESO til sögunnar, 67 00:05:37,000 --> 00:05:40,890 eins og verkefni og fyrirlestrar í skólum. 68 00:05:43,190 --> 00:05:47,060 Þegar reikistjarnan Venus gekk fyrir sólina árið 2004 69 00:05:47,060 --> 00:05:51,620 var sérstöku verkefni beint að nemendum og kennurum í Evrópu. 70 00:05:54,500 --> 00:05:59,030 Og árið 2009, á Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar, 71 00:05:59,030 --> 00:06:03,980 náði ESO til milljóna skólabarna út um allan heim. 72 00:06:03,980 --> 00:06:08,430 Þegar öllu er á botninn hvolft eru börn dagsins í dag, stjörnufræðingar framtíðarinnar. 73 00:06:13,490 --> 00:06:18,080 En þegar kemur að útbreiðslustarfi er ekkert sem slær út sjálfan alheiminn. 74 00:06:25,440 --> 00:06:27,870 Stjörnufræði er myndræn vísindagrein. 75 00:06:27,870 --> 00:06:34,200 Ljósmyndir af vetrarbrautum, stjörnuþyrpingum og stjörnumyndunarsvæðum vekja áhuga. 76 00:06:39,010 --> 00:06:40,430 Þegar rannsóknir standa ekki yfir 77 00:06:40,430 --> 00:06:45,150 eru sjónaukar ESO stundum notaðir í Cosmic Gems verkefnið 78 00:06:45,150 --> 00:06:50,220 sem snýst eingöngu um að taka myndir til að miðla vísindunum til almennings. 79 00:06:58,220 --> 00:07:02,110 Ein mynd segir jú meira en þúsund orð. 80 00:07:05,110 --> 00:07:09,400 Almenningur getur jafnvel tekið þátt í að útbúa þessar glæsilegu myndir 81 00:07:09,400 --> 00:07:12,130 í gegnum Hidden Treasures keppnirnar. 82 00:07:15,370 --> 00:07:21,620 Rússneski stjörnuáhugamaðurinn Igor Chekalin varð hlutskarpastur í keppninni árið 2010. 83 00:07:23,270 --> 00:07:27,200 Glæsilegar myndir hans eru byggðar á raunverulegum vísindagögnum. 84 00:07:32,980 --> 00:07:35,750 Aðildarríki, iðnaður og háskólar. 85 00:07:35,750 --> 00:07:38,520 Með samstarfi á öllum hugsanlegum stigum 86 00:07:38,520 --> 00:07:43,760 hefur ESO orðið að einum farsælustu stjarnvísindasamtökum heims. 87 00:07:44,420 --> 00:07:48,820 Og í gegnum útbreiðslustarfið er þér boðið að taka þátt í ævintýrinu. 88 00:07:49,000 --> 00:07:52,240 Þú getur uppgötvað alheiminn! 89 00:07:55,500 --> 00:07:59,800 Þetta er Dr. J sem kveður úr þessum aukaþætti ESOcast. 90 00:07:59,800 --> 00:08:02,980 Fylgstu með nýjum stjarnfræðilegum ævintýrum í næsta þætti. 91 00:08:05,930 --> 00:08:08,230 ESOcast er framleitt af ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli. 92 00:08:09,690 --> 00:08:11,110 ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli 93 00:08:11,110 --> 00:08:12,880 eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims 94 00:08:12,880 --> 00:08:14,690 sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnustöðvar veraldar. 95 00:08:18,230 --> 00:08:23,000 Handrit ESO; þýðing Sævar Helgi Bragason