1 00:00:02,000 --> 00:00:04,000 Á 50 ára afmælisdegi sínum, 2 00:00:05,000 --> 00:00:07,000 þann 5. október 2012, 3 00:00:08,000 --> 00:00:11,000 stóð ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli 4 00:00:11,000 --> 00:00:16,000 fyrir beinni vefútsendingu sem kallaðist „Dagur í lífi ESO“. 5 00:00:16,000 --> 00:00:21,000 Með útsendingunni gafst áhorfendum einstakt tækifæri til að skoða 6 00:00:21,000 --> 00:00:25,000 innviði öflugustu stjörnustöðvar heims 7 00:00:25,000 --> 00:00:32,000 og hjálpa til við að halda upp á fyrstu 50 árin í rannsóknum ESO á suðurhimninum. 8 00:00:34,000 --> 00:00:37,000 ESO var sett á laggirnar árið 1962 og er í dag 9 00:00:37,000 --> 00:00:43,000 fremstu fjölþjóðlegu vísinda- og tæknisamtök í stjörnufræði í heiminum 10 00:00:43,000 --> 00:00:48,000 og starfrækja þrár einstakar stjörnustöðvar á heimsmælikvarða í Chile, 11 00:00:48,000 --> 00:00:51,000 en höfuðstöðvarnar eru í Garching í Þýskalandi. 12 00:00:56,000 --> 00:00:58,000 Þetta er ESOcast! 13 00:00:58,000 --> 00:01:00,000 Vísindi í fremstu röð 14 00:01:00,000 --> 00:01:05,000 og lífið á bak við tjöldin hjá ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli. 15 00:01:17,000 --> 00:01:20,000 Það er morgun þann 5. október. 16 00:01:20,000 --> 00:01:24,000 Niðurtalning fyrir vefútsendinguna „Dagur í lífi ESO“ 17 00:01:24,000 --> 00:01:28,000 er hafin og undirbúningur á fullu. 18 00:01:28,000 --> 00:01:35,000 Stutt er þar til bein útsending undir stjórn Dr. J., einnig þekktur sem Dr. Joe Liske 19 00:01:35,000 --> 00:01:37,000 hefst, sem gefur almenningi 20 00:01:37,000 --> 00:01:41,000 tækifæri til að eiga samskipti við stjörnufræðinga og verkfræðinga ESO 21 00:01:41,000 --> 00:01:45,000 með því að hlusta á erindi í beinni útsendingu og spyrja þá spurninga. 22 00:01:47,000 --> 00:01:51,000 Á sama tíma hinumegin á hnettinum 23 00:01:51,000 --> 00:01:53,000 hefur hin franska Brigitte Bailleul, vinningshafinn 24 00:01:53,000 --> 00:01:57,000 í „Tístaðu þig í heimsókn til VLT!“ keppninni, 25 00:01:57,000 --> 00:02:00,000 komið sér fyrir í Paranal stjörnustöðinni í Chile 26 00:02:00,000 --> 00:02:03,000 og býr sig undir að taka við verðlaununum sínum: 27 00:02:03,000 --> 00:02:06,000 Að gera mælingar í beinni útsendingu með heimsins 28 00:02:06,000 --> 00:02:10,000 öflugasta stjörnusjónauka fyrir sýnilegt ljós, 29 00:02:10,000 --> 00:02:14,000 Very Large Telescope eða VLT. 30 00:02:17,000 --> 00:02:20,000 Fyrr en varir er komin á tenging milli höfuðstöðva ESO 31 00:02:20,000 --> 00:02:24,000 í Garching í Þýskalandi og Brigitte í Paranal 32 00:02:24,000 --> 00:02:27,000 og mörg hundruð manns frá öllum heimshornum 33 00:02:27,000 --> 00:02:31,000 fylgjast með Brigitte gera mælingarnar. 34 00:02:32,000 --> 00:02:34,000 Hún er nú orðin sérfræðingur 35 00:02:34,000 --> 00:02:37,000 og mun hefja mælingarnar. 36 00:02:42,000 --> 00:02:47,000 Ok, nú höfum við sent skipanir um að hefja mælingarnar. 37 00:02:47,000 --> 00:02:51,000 Viðfangsefni VLT er Þórshjálmsþokan 38 00:02:51,000 --> 00:02:54,000 fyrirbæri sem almenningur kaus 39 00:02:54,000 --> 00:02:57,000 í „Veldu það sem VLT skoðar“ keppninni. 40 00:03:06,000 --> 00:03:07,000 Vá! Þetta er ótrúlegt! 41 00:03:08,000 --> 00:03:11,000 Þetta er það sem þú færð með 30 sekúndna 42 00:03:11,000 --> 00:03:13,000 lýsingartíma með VLT. 43 00:03:13,000 --> 00:03:14,000 Þetta er ótrúlegt! 44 00:03:14,000 --> 00:03:16,000 Ég átti ekki von á þessu. 45 00:03:17,000 --> 00:03:19,000 Hvað finnst þér? 46 00:03:19,000 --> 00:03:21,000 Þetta er frábært! 47 00:03:23,000 --> 00:03:27,000 Í Þýskalandi kynnir Dr. J nokkur erindi 48 00:03:27,000 --> 00:03:31,000 frá sérfræðingum ESO sem veita upplýsingar frá fyrstu hendi 49 00:03:31,000 --> 00:03:34,000 og innsýn í heim stjarnvísindarannsókna. 50 00:03:37,000 --> 00:03:40,000 Allt snýst um spurningar, við spyrjum spurninga 51 00:03:40,000 --> 00:03:43,000 vegna þess að við viljum vita, það er það sem við gerum, það sem við lifum fyrir. 52 00:03:43,000 --> 00:03:46,000 Og sér í lagi, það sem fannst hér 53 00:03:46,000 --> 00:03:48,000 var útgeislun einfalds sykurs 54 00:03:48,000 --> 00:03:52,000 en það er mikilvægt vegna þess að sykur er grunnkeðjan 55 00:03:52,000 --> 00:03:54,000 sem myndar orku fyrir líf 56 00:03:54,000 --> 00:03:58,000 og þessi einfaldi sykur fannst fyrst í mælingum ALMA. 57 00:03:58,000 --> 00:04:02,000 Með hátækninni höfum við öðlast betri sýn á náttúruna 58 00:04:02,000 --> 00:04:07,000 það er þar sem vísindamenn komast mjög nálægt 59 00:04:07,000 --> 00:04:10,000 náttúrunni, þannig geta þeir skilið náttúruna. 60 00:04:13,000 --> 00:04:15,000 Fyrir, á meðan og eftir hvert erindi, 61 00:04:15,000 --> 00:04:19,000 senda nokkur hundruð áhorfendur spurningar til fyrirlesarana 62 00:04:19,000 --> 00:04:24,000 í gegnum Facebook, Twitter, tölvupóst eða spjallkassann í útsendingunni sjálfri. 63 00:04:25,000 --> 00:04:28,000 Á hvaða tíma dags getur þú notað ALMA útvarpssjónaukana, 64 00:04:28,000 --> 00:04:30,000 bara á næturnar? 65 00:04:30,000 --> 00:04:33,000 Nei, við getum tæknilega séð notað ALMA allan sólarhringinn. 66 00:04:34,000 --> 00:04:39,000 Hefurðu einhverjar ráðleggingar fyrir ungt fólk sem er að fylgjast með og vilja verða stjörnufræðingar? 67 00:04:39,000 --> 00:04:41,000 Já! 68 00:04:41,000 --> 00:04:45,000 Mín ráðlegging er spurningar — spyrjið spurninga, alltaf! 69 00:04:45,000 --> 00:04:49,000 Eftir að við finnum merki um líf í lofthjúpi fjarreikistjörnu, 70 00:04:49,000 --> 00:04:51,000 hvert heldur þú að verði næsta skref? 71 00:04:51,000 --> 00:04:53,000 Hvað munum við gera næst? 72 00:04:54,000 --> 00:04:57,000 Ég held að eitt af næstu skrefunum sé ef til vill 73 00:04:57,000 --> 00:04:59,000 að leita að útvarpsmerkjum. 74 00:05:01,000 --> 00:05:06,000 Næstum 600 áhorfendur frá 55 löndum 75 00:05:06,000 --> 00:05:08,000 létu reyna á þekkingu sína á ESO 76 00:05:08,000 --> 00:05:11,000 í spurningakeppni sem fram fór allan daginn. 77 00:05:17,000 --> 00:05:20,000 Milli erinda voru sýndir 78 00:05:20,000 --> 00:05:26,000 kaflar úr afmælismynd ESO, „Evrópa til stjarnanna“. 79 00:05:26,000 --> 00:05:32,000 Þessi heimildarmynd segir frá sögu ESO með glæsilegum myndum. 80 00:05:38,000 --> 00:05:41,000 Í lok dagsins 81 00:05:41,000 --> 00:05:44,000 er aftur komið á beinni tengingu við Paranal stjörnustöðina. 82 00:05:45,000 --> 00:05:49,000 Á palli VLT stjörnustöðvarinnar 83 00:05:49,000 --> 00:05:53,000 á hinu 2.600 metra háa Cerro Paranal fjalli 84 00:05:53,000 --> 00:05:56,000 bíður hópur stjörnufræðinga ásamt óþreyjufullri Brigitte 85 00:05:56,000 --> 00:06:00,000 eftir að sjá niðurstöður mælinganna fyrr um daginn. 86 00:06:00,000 --> 00:06:02,000 Enginn verður fyrir vonbrigðum. 87 00:06:03,000 --> 00:06:07,000 VLT hefur náð glæsilegri 88 00:06:07,000 --> 00:06:10,000 ljósmynd af Þórshjálmsþokunni. 89 00:06:18,000 --> 00:06:21,000 Og þar með er tími til kominn fyrir Dr. J 90 00:06:21,000 --> 00:06:25,000 að kveðja og ljúka beinu útsendingunni: 91 00:06:25,000 --> 00:06:27,000 „Dagur í lífi ESO.“ 92 00:06:29,000 --> 00:06:32,000 Fyrir Brigitte var þetta einstakt tækifæri 93 00:06:32,000 --> 00:06:36,000 og fyrir áhorfendurna, tækifæri til að deila reynslunni með henni. 94 00:06:37,000 --> 00:06:44,000 Er til betri leið til að halda upp á 50 frábær stjörnufræðiár hjá ESO? 95 00:06:50,000 --> 00:06:52,000 Handrit: ESO; Þýðing: Sævar Helgi Bragason