1 00:00:02,000 --> 00:00:05,760 Útbreiðslustarf 2 00:00:07,720 --> 00:00:10,840 Stephane Guisard dýrkar stjörnurnar. 3 00:00:11,890 --> 00:00:14,350 Ekki skrítið að hann hafi dálæti á norður Chile líka. 4 00:00:15,400 --> 00:00:19,640 Hér er útsýnið út í alheiminn með því besta sem gerist á jörðinni. 5 00:00:21,180 --> 00:00:24,000 Því skyldi engan undra hvers vegna hann dýrkar Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli 6 00:00:24,000 --> 00:00:26,770 — auga Evrópu á himninum. 7 00:00:27,920 --> 00:00:31,460 Stephane er franskur verðlaunaljósmyndari og rithöfundur. 8 00:00:33,310 --> 00:00:37,190 Hann er líka einn af ljósmyndurum ESO. 9 00:00:41,990 --> 00:00:46,970 Glæsilegar myndir hans sýna vel afskekkta Atacamaeyðimörkina, 10 00:00:46,970 --> 00:00:49,900 fullkomna hátækni-risasjónauka 11 00:00:49,900 --> 00:00:53,740 og mikilfengleika næturhiminsins. 12 00:01:01,730 --> 00:01:05,250 Líkt og aðrir ljósmyndarar ESO út um allan heim 13 00:01:05,250 --> 00:01:08,730 hjálpar Stephane til við að breiða út boðskap ESO. 14 00:01:10,450 --> 00:01:14,330 Boðskap forvitni, undrunar og innblásturs, 15 00:01:14,330 --> 00:01:17,840 sem miðlað er í gegnum samvinnu og útbreiðslustarf. 16 00:01:21,010 --> 00:01:24,140 Samvinna hefur ætíð verið grunnurinn að árangri ESO. 17 00:01:24,510 --> 00:01:25,510 Fyrir fimmtíu árum 18 00:01:25,860 --> 00:01:27,350 tók Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli 19 00:01:27,640 --> 00:01:30,110 til starfa með stofnríkjunum fimm: 20 00:01:30,120 --> 00:01:34,360 Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi og Svíþjóð. 21 00:01:34,760 --> 00:01:37,190 Fljótlega fylgdu önnur Evrópuríki í kjölfarið. 22 00:01:37,510 --> 00:01:43,630 Danmörk árið 1967, Ítalía og Sviss árið 1982. Portúgal árið 2011. 23 00:01:43,630 --> 00:01:45,860 Bretland árið 2002. 24 00:01:46,800 --> 00:01:50,950 Síðasta áratug hafa Finnland, Spánn, Tékkland og Austurríki 25 00:01:50,950 --> 00:01:54,580 bæst í hóp stærstu stjarnvísindasamtaka Evrópu. 26 00:01:55,600 --> 00:01:59,160 Nú síðast varð Brasilía 15. aðildarríki ESO 27 00:01:59,160 --> 00:02:02,160 og fyrsta ríki utan Evrópu til að taka þátt. 28 00:02:02,580 --> 00:02:04,390 Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér? 29 00:02:05,410 --> 00:02:09,720 Saman tryggja aðildarríkin bestu mögulegu stjarnvísindarannsóknir 30 00:02:09,720 --> 00:02:12,740 í stærstu stjörnustöðvum heims. 31 00:02:18,170 --> 00:02:20,310 Og þátttakan er góð fyrir efnahag þeirra líka. 32 00:02:21,250 --> 00:02:25,740 ESO starfar náið með iðnaði í Evrópu og Chile. 33 00:02:36,660 --> 00:02:39,060 Vegir hafa verið lagðir. 34 00:02:39,910 --> 00:02:41,820 Fjallstindar jafnaðir. 35 00:02:43,310 --> 00:02:46,380 Ítölsku iðnaðarsamtökin AES 36 00:02:46,380 --> 00:02:50,570 byggðu aðalmannvirki VLT sjónaukanna fjögurra. 37 00:02:50,570 --> 00:02:55,630 Hver sjónauki vegur um 430 tonn. 38 00:02:57,330 --> 00:03:03,170 Samtökin smíðuðu líka risahvolfin í kringum þá, hvert á stærð við tíu hæða byggingu. 39 00:03:05,950 --> 00:03:10,920 Þýski glerframleiðandinn Schott bjó til hina viðkvæmu spegla VLT 40 00:03:10,920 --> 00:03:15,370 sem eru meira en átta metra breiðir en aðeins tuttugu sentímetra þykkir. 41 00:03:16,830 --> 00:03:18,290 Í REOSC í Frakklandi 42 00:03:18,290 --> 00:03:23,030 voru speglarnir slípaðir með nákvæmni upp á milljónasta úr millímetra, 43 00:03:23,030 --> 00:03:26,280 áður en þeir voru sendir í langferðina til Paranal. 44 00:03:31,470 --> 00:03:35,180 Á meðan þróuðu háskólar og rannsóknastofnanir í Evrópu 45 00:03:35,180 --> 00:03:38,839 ljósnæmar myndavélar og litrófsrita. 46 00:03:40,839 --> 00:03:43,510 Sjónaukar ESO eru byggðir fyrir fé skattgreiðenda. 47 00:03:43,510 --> 00:03:44,610 Þína peninga. 48 00:03:45,010 --> 00:03:47,750 Þess vegna getur þú tekið þátt í veislunni. 49 00:03:48,270 --> 00:03:53,060 Til dæmis eru heilmiklar stjarnfræðiupplýsingar á vef ESO, 50 00:03:53,060 --> 00:03:56,660 þar á meðal mörg þúsund fallegar ljósmyndir og myndskeið. 51 00:03:59,080 --> 00:04:02,630 ESO gefur líka út tímarit, fréttatilkynningar 52 00:04:02,630 --> 00:04:07,350 og heimildarmyndir eins og þá sem þú ert að horfa á núna. 53 00:04:09,570 --> 00:04:11,190 Og út um allan heim 54 00:04:11,190 --> 00:04:17,010 leggur Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli sitt af mörkum til sýninga og vísindahátíða. 55 00:04:22,040 --> 00:04:26,640 Óteljandi leiðir til að uppgötva alheiminn! 56 00:04:28,780 --> 00:04:32,030 Vissir þú að VLT sjónaukarnir fjórir eru nefndir eftir 57 00:04:32,030 --> 00:04:34,460 uppástungu ungrar stúlku frá Chile? 58 00:04:35,370 --> 00:04:37,680 Hin 17 ára Jorssy Albanez Castilla 59 00:04:37,680 --> 00:04:42,800 stakk upp á nöfnunum Antu, Kueyen, Melipal og Yepun 60 00:04:42,800 --> 00:04:49,160 sem þýða sólin, tunglið, Suðurkrossinn og Venus í Mapuche tungumálinu. 61 00:04:50,500 --> 00:04:54,440 Mikilvægt er að fá nemendur eins og Jorssy til þátttöku. 62 00:04:55,960 --> 00:04:58,840 Þar koma menntaverkefni ESO til sögunnar, 63 00:04:59,010 --> 00:05:02,900 eins og verkefni og fyrirlestrar í skólum. 64 00:05:05,200 --> 00:05:09,070 Þegar reikistjarnan Venus gekk fyrir sólina árið 2004 65 00:05:09,070 --> 00:05:13,630 var sérstöku verkefni beint að nemendum og kennurum í Evrópu. 66 00:05:16,510 --> 00:05:21,040 Og árið 2009, á Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar, 67 00:05:21,040 --> 00:05:25,990 náði ESO til milljóna skólabarna út um allan heim. 68 00:05:25,990 --> 00:05:30,440 Þegar öllu er á botninn hvolft eru börn dagsins í dag, stjörnufræðingar framtíðarinnar. 69 00:05:35,500 --> 00:05:40,090 En þegar kemur að útbreiðslustarfi er ekkert sem slær út sjálfan alheiminn. 70 00:05:47,450 --> 00:05:49,880 Stjörnufræði er myndræn vísindagrein. 71 00:05:49,880 --> 00:05:56,210 Ljósmyndir af vetrarbrautum, stjörnuþyrpingum og stjörnumyndunarsvæðum vekja áhuga. 72 00:06:01,020 --> 00:06:02,440 Þegar rannsóknir standa ekki yfir 73 00:06:02,440 --> 00:06:07,160 eru sjónaukar ESO stundum notaðir í Cosmic Gems verkefnið 74 00:06:07,160 --> 00:06:12,230 sem snýst eingöngu um að taka myndir til að miðla vísindunum til almennings. 75 00:06:20,230 --> 00:06:24,120 Ein mynd segir jú meira en þúsund orð. 76 00:06:27,120 --> 00:06:31,410 Almenningur getur jafnvel tekið þátt í að útbúa þessar glæsilegu myndir 77 00:06:31,410 --> 00:06:34,140 í gegnum Hidden Treasures keppnirnar. 78 00:06:37,380 --> 00:06:43,630 Rússneski stjörnuáhugamaðurinn Igor Chekalin varð hlutskarpastur í keppninni árið 2010. 79 00:06:45,280 --> 00:06:49,210 Glæsilegar myndir hans eru byggðar á raunverulegum vísindagögnum. 80 00:06:54,990 --> 00:06:57,760 Aðildarríki, iðnaður og háskólar. 81 00:06:57,760 --> 00:07:00,530 Með samstarfi á öllum hugsanlegum stigum 82 00:07:00,530 --> 00:07:05,770 hefur ESO orðið að einum farsælustu stjarnvísindasamtökum heims. 83 00:07:06,430 --> 00:07:10,830 Og í gegnum útbreiðslustarfið er þér boðið að taka þátt í ævintýrinu. 84 00:07:11,010 --> 00:07:14,250 Þú getur uppgötvað alheiminn!