Næfurþunn spegilsskel fyrir Adaptive Optics Facility í Very Large Telescope ESO
Verkfræðingar hjá SAGEM í Frakklandi á bakvið næfurþunna spegilsskel sem þeir bjuggu til fyrir Adaptive Optics Facility í Very Large Telescope. Skelin er 1120 millímetrar í þvermál en aðeins 2 millímetrar að þykkt og því þynnri en gler í flestum gluggum. Skelin verður að vera þetta þunn til að hún geti verkað sem sveigjanleg himna, eða því sem næst. Þegar henni verður komið fyrir á sjónaukanum, verður lögun hennar stöðugt breytt hárfítt svo hægt sé að leiðrétta bjögun af völdum ókyrrðar í lofthjúpi jarðar og þannig ná miklu skarpari myndum af stjörnunum.
Mynd/Myndskeið:
SAGEM/ESO
Um myndina
| Auðkenni: | ann12015a |
| Tungumál: | is |
| Type: | Ljósmynd |
| Útgáfudagur: | Mar 2, 2012, 10:00 CET |
| Tengdar tilkynningar: | ann12015 |
| Stærð: | 2198 x 2236 px |
Um fyrirbærið
| Type: | • Unspecified : Technology • Unspecified : People • X - People and Events |








