Mynd VLT af þyrilvetrarbrautinni NGC 1187 (merkt)
Vetrarbrautin NGC 1187 prýðir þessa nýju mynd sem tekin var með Very Large Telescope ESO. Þessi fallega þyrilvetrarbraut er í um 60 milljóna ljósára fjarlægð frá jörðinni í stjörnumerkinu Fljótinu. Í NGC 1187 hafa orðið tvær sprengistjörnur síðastliðin þrjátíu ár, síðast árið 2007. Sjá má glitta í sprengistjörnuna neðarlega á myndinni en hún er merkt með hvítum hring.
Mynd/Myndskeið:
ESO
Um myndina
| Auðkenni: | eso1231b |
| Tungumál: | is |
| Type: | Háskóli |
| Útgáfudagur: | Ágú 1, 2012, 12:00 CEST |
| Tengdar fréttatilkynningar: | eso1231 |
| Stærð: | 3327 x 1928 px |
Um fyrirbærið
| Nafn: | NGC 1187 |
| Type: | • Local Universe : Galaxy : Type : Spiral • X - Galaxies |
| Fjarlægð: | 60 milljón ljósár |



















