CFBDSIR J214947.2-040308.9, reikistjarna á flandri
Á þessari nærmynd úr innrauðri ljósmynd sem tekin var með SOFI mælitækinu í New Technology Telescope ESO í La Silla stjörnustöðinni, sést CFBDSIR J214947.2-040308.9, reikistjarna á flandri. Þetta fyrirbæri, sem sést sem fölblár blettur á miðri myndinni, er nálægasta fyrirbæri sinnar tegundar við sólkerfið okkar. Það hringsólar ekki um stjörnu og endurvarpar þar af leiðandi ekki neinu ljósi; einungis er hægt að greina daufan innrauðan bjarmann sem það gefur frá sér. Fyrirbærið sýnist bláleitt á þessari nær-innrauðu mynd vegna þess að metan og aðrar sameindir í lofthjúpnum gleypa löngu innrauðu bylgjulengdirnar að mestu leyti. Fyrirbærið er svo kalt að ef við sæjum það í návigi í sýnilegu ljósi, gæfi það frá sér daufan dimmrauðan bjarma.
Mynd/Myndskeið:
ESO/P. Delorme
Um myndina
| Auðkenni: | eso1245b |
| Tungumál: | is |
| Type: | Athuganir |
| Útgáfudagur: | Nóv 14, 2012, 12:00 CET |
| Tengdar fréttatilkynningar: | eso1245 |
| Stærð: | 688 x 688 px |
Um fyrirbærið
| Nafn: | CFBDSIR J214947.2-040308.9, Exoplanets |
| Type: | • Milky Way : Star : Circumstellar Material : Planetary System |
| Fjarlægð: | 100 ljósár |
Litir og síur
| Tíðnisvið | Sjónauki |
| Innrautt J |
New Technology Telescope SofI |
| Innrautt H |
New Technology Telescope SofI |
| Innrautt K |
New Technology Telescope SofI |


















