E-ELT í tölum
- Þvermál safnspegils: 39,3 metrar
- Flatarmál ljóssöfnunarsvæðis: 1200 fermetrar
39,3 metrar í þvermál
Safnspegill sjónaukans er 39,3 metrar í þvermál. Hann verður stærsti stjörnusjónauki heims til rannsókna á sýnilegu ljósi. Sjónaukinn verður fjórum til fimm sinnum stærri en öflugustu sjónaukar dagsins í dag og safnar allt að 15 sinnum meira ljósi. Hann verður auk þess mun stærri en Þrjátíu metra sjónaukinn og Magellan-risasjónaukinn, aðrir tveir fyrirhugaðir risasjónaukar.
Næstum 1000 stakir speglar
Ómögulegt er að smíða svo stóran spegil í heilu lagi. Þess vegna verður 39,3 metra breiði safnspegillinn settur saman úr næstum 1000 sexhyrndum 1,4 metra breiðum og 5 cm þykkum speglum. Þetta er gert svo hægt sé að framleiða speglana í miklu magni svo draga megi úr kostnaði. Annars yrði E-ELT alltof kostnaðarsamur.
