Teikning listamanns af glýkólaldehýðssameindum
Hópur stjörnufræðinga hefur fundið glýkólaldehýð — einfalt form af sykri — í gasþoku í kringum ungt tvístirni sem er álíka massamikið og sólin og kallast IRAS 16293-2422. Þetta er í fyrsta sinn sem sykur finnst í geimnum umhverfis slíka stjörnu. Uppgötvunin sýnir að byggingareiningar lífs eru á réttum stað á réttum tíma til þess að reikistjörnur, sem eru að myndast í kringum stjörnuna, geti innihaldið þær. Stjörnufræðingarnir fundu sameindirnar með Atacama Large Millimeter/submillimeter Array (ALMA).
Myndskeiðið sýnir teikningu listamanns af glýkólaldehýðssameindum og sameindabyggingu þess (C2H4O2). Kolefnisatóm eru sýnd grá, súrefnisatóm rauð og vetnisatóm hvít.
Mynd/Myndskeið:
ALMA (ESO/NAOJ/NRAO)/L. Calçada (ESO)
Um myndskeiðið
| Auðkenni: | eso1234b |
| Tungumál: | is |
| Útgáfudagur: | Ágú 29, 2012, 12:00 CEST |
| Tengdar fréttatilkynningar: | eso1234 |
| Tímalengd: | 26s |
Um fyrirbærið
| Nafn: | IRAS 16293-2422, Molecules |
| Type: | • Milky Way : Star : Evolutionary Stage : Protostar • Unspecified : Star : Evolutionary Stage : Protostar • X - ALMA |

















