Teikning listamanns af myrkvatvístirni
Loading player...
Í þessu myndskeiði sést teikning listamanns af myrkvatvístirnakerfi. Þegar stjörnurnar tvær hringsnúast um hver aðra, ganga þær fyrir hver aðra og minnkar þá samanlögð birta þeirra, séð úr fjarlægð. Með því að rannska hvernig ljósið breytist, sem og aðra eiginleika kerfisins, geta stjörnufræðingar mælt fjarlægðina til myrkvatvístirna mjög nákvæmlega. Löng röð mælinga á mjög sjaldgæfri tegund kaldra myrkvatvístirna hefur nú leitt til nákvæmustu fjarlægðarmælinga sem gerðar hafa verið á Stóra Magellansskýinu, nágrannavetrarbraut okkar. Þessar mælingar marka mikilvægt skref í ákvörðun á fjarlægðum í alheiminum.
Mynd/Myndskeið:
ESO/L. Calçada
Um myndskeiðið
| Auðkenni: | eso1311b |
| Tungumál: | is |
| Útgáfudagur: | Mar 6, 2013, 19:00 CET |
| Tengdar fréttatilkynningar: | eso1311 |
| Tímalengd: | 36s |
Um fyrirbærið
| Type: | • X - Stars |
















