//Font select and font size $FontName = Arial $FontSize = 30 //Character attributes (global) $Bold = FALSE $UnderLined = FALSE $Italic = FALSE //Position Control $HorzAlign = Center $VertAlign = Bottom $XOffset = 0 $YOffset = 0 //Contrast Control $TextContrast = 15 $Outline1Contrast = 8 $Outline2Contrast = 15 $BackgroundContrast = 0 //Effects Control $ForceDisplay = FALSE $FadeIn = 0 $FadeOut = 0 //Other Controls $TapeOffset = FALSE //$SetFilePathToken = <<:>> //Subtitles 00:00:05:05,00:00:08:20,Með því að þenja sjónsvið okkar langt út fyrir hugarflug forfeðranna 00:00:08:21,00:00:13:05,vísa þessi undraverðu tæki, sjónaukarnir, veginn í átt að dýpri og 00:00:13:06,00:00:17:06,fullkomnari skilningi á náttúrunni. - René Descartes, 1637 00:00:17:17,00:00:22:13,Um árþúsundir hefur mannkynið horft upp í seiðandi næturhimininn 00:00:22:14,00:00:28:08,án þess að bera skynbragð á stjörnurnar í Vetrarbrautinni okkar sem aðrar sólir 00:00:28:09,00:00:33:10,eða milljarða systurvetrarbrauta sem fylla aðra hluta heimsins 00:00:35:10,00:00:38:19,eða hvernig við erum aðeins örlítill depill í 00:00:38:20,00:00:42:12,13,7 milljarða ára sögu alheimsins. 00:00:42:13,00:00:46:02,Þegar augu okkar voru einu sjóntækin áttum við enga möguleika á 00:00:46:03,00:00:50:03,að finna sólkerfi umhverfis aðrar stjörnur, eða komast að því 00:00:50:04,00:00:55:00,hvort líf væri að finna annars staðar í alheiminum. 00:00:58:01,00:01:00:08,Nú erum við komin áleiðis við að skýra mörg 00:01:00:09,00:01:03:13,undur alheimsins á tímum sem segja má að séu 00:01:03:14,00:01:05:23,gullöld uppgötvana í stjörnufræði. 00:01:05:24,00:01:08:24,Ég er Dr. J og leiði ykkur í sannleikann um sjónaukann - 00:01:09:00,00:01:11:21,hið undraverða tæki sem hefur opnað alheiminn upp á gátt 00:01:11:22,00:01:15:12,fyrir mannkynið. 00:01:17:22,00:01:21:21,HORFT TIL HIMINS 400 ára saga uppgötvana með sjónaukanum 00:01:22:03,00:01:26:23,1. Ný sýn á himininn 00:01:28:24,00:01:32:03,Fyrir fjórum öldum, árið 1609, gekk maður út 00:01:32:04,00:01:34:15,á akra í grennd við heimili sitt. 00:01:34:16,00:01:39:00,Hann beindi heimagerðum sjónauka sínum í átt að tunglinu, plánetunum og stjörnunum. 00:01:39:00,00:01:42:14,Hann hét Galileó Galilei. 00:01:43:25,00:01:47:07,Stjörnufræðin varð aldrei söm eftir þetta. 00:02:07:10,00:02:12:10,Nú, 400 árum eftir að Galileó beindi fyrst sjónauka í átt til himins 00:02:12:14,00:02:18:07,nota stjörnufræðingar risavaxna spegla á fjarlægum fjallstindum til þess að kanna himininn. 00:02:18:08,00:02:23:12,Útvarpssjónaukar safna ógreinilegu tísti og hvískri utan úr geimnum. 00:02:23:13,00:02:27:16,Vísindamenn hafa jafnvel sent sjónauka út í geim 00:02:27:16,00:02:31:23,langt út fyrir truflandi áhrif lofthjúpsins. 00:02:33:10,00:02:38:16,Og útsýnið hefur verið stórkostlegt! 00:02:42:23,00:02:46:15,Reyndar fann Galileó ekki upp sjónaukann. 00:02:46:16,00:02:49:18,Þann heiður á Hans Lipperhey, tiltölulega lítt þekktur 00:02:49:19,00:02:53:10,hollensk-þýskur sjóntækjafræðingur. 00:02:53:11,00:02:57:21,En Hans Lipperhey notaði aldrei sjónaukann til þess að gá til stjarna. 00:02:57:22,00:03:00:20,Þess í stað hélt hann að uppgötvun sín myndi helst gagnast 00:03:00:21,00:03:03:15,sæfarendum og hermönnum. 00:03:03:18,00:03:07:06,Lipperhey var frá Middelburg sem þá var stór verslunarborg 00:03:07:06,00:03:10:11,í hinu nýstofnaða Hollenska lýðveldi. 00:03:13:24,00:03:18:01,Árið 1608 uppgötvaði Lipperhey að þegar horft er á fjarlægan hlut 00:03:18:02,00:03:24:00,í gegnum kúpta og íhvolfa linsu, stækkar hluturinn ef 00:03:24:01,00:03:29:15,linsurnar eru staðsettar í réttri fjarlægð hvor frá annarri. 00:03:29:15,00:03:33:19,Sjónaukinn var fæddur! 00:03:33:20,00:03:37:12,Í september 1608 sýndi Lipperhey uppgötvun sína 00:03:37:13,00:03:39:21,hollenska prinsinum Maurits. 00:03:39:22,00:03:42:20,Hann hefði ekki getað valið betra augnablik því 00:03:42:21,00:03:45:21,á þessum tíma var Holland flækt í 00:03:45:22,00:03:49:08,80 ára stríðið við Spánverja. 00:03:55:07,00:03:59:02,Hinn nýuppgötvaði sjónauki gat stækkað hluti og komið upp um 00:03:59:02,00:04:02:07,óvinaskip og hersveitir sem voru of fjarlægar til þess að sjást 00:04:02:08,00:04:04:09,með berum augum. 00:04:04:10,00:04:07:11,Sem sagt, mjög gagnleg uppgötvun! 00:04:07:12,00:04:12:00,En hollenska ríkistjórnin veitti Lipperhey aldrei einkaleyfi á sjónaukanum. 00:04:12:00,00:04:15:10,Ástæða þess var að aðrir kaupmenn gerðu einnig tilkall til uppgötvunarinnar 00:04:15:10,00:04:19:05,einkum keppinautur Lipperheys, Sacharias Janssen. 00:04:19:06,00:04:21:12,Deilan var aldrei útkljáð. 00:04:21:13,00:04:27:22,Enn þann dag í dag er nákvæmur uppruni sjónaukans sveipaður dulúð. 00:04:28:21,00:04:32:17,Ítalski stjörnufræðingurinn Galileó Galilei, faðir nútíma eðlisfræði 00:04:32:18,00:04:37:15,heyrði af sjónaukanum og ákvað að smíða eigin sjónauka. 00:04:38:07,00:04:42:09,Fyrir um tíu mánuðum barst það mér til eyrna að tiltekinn 00:04:42:10,00:04:48:05,Flæmingi hefði smíðað fjarsjá en með hjálp hennar verða sýnileg fyrirbæri 00:04:48:06,00:04:52:24,þótt fjarlæg séu, auðveldlega sjáanleg 00:04:53:00,00:04:56:03,sem væru þau rétt hjá. 00:04:56:11,00:04:59:11,Galileó var mesti vísindamaður síns tíma. 00:04:59:12,00:05:02:14,Hann studdi eindregið hina nýju heimsmynd 00:05:02:15,00:05:06:04,pólska stjörnufræðingsins Nikulásar Kópernikusar sem varpaði fram þeirri hugmynd að 00:05:06:05,00:05:10:11,jörðin snerist um sólina, en ekki öfugt. 00:05:11:12,00:05:14:06,Út frá því sem hann hafði heyrt um hollenska sjónaukann 00:05:14:07,00:05:16:14,smíðaði Galileó eigin sjóntæki. 00:05:16:15,00:05:19:04,Þau voru af miklu meiri gæðum. 00:05:20:12,00:05:25:08,Að lokum, með því að leggja í mikla vinnu og kostnað, tókst mér 00:05:25:09,00:05:29:20,að smíða handa sjálfum mér svo fullkomið tæki að 00:05:29:20,00:05:33:22,hlutir sem sjást í því virðast nánast þúsund 00:05:33:23,00:05:38:20,sinnum stærri en með berum augum. 00:05:39:16,00:05:43:15,Það var kominn tími til þess að reyna sjónaukann á himninum. 00:05:45:21,00:05:49:03,Ég er orðinn sannfærður um að yfirborð 00:05:49:03,00:05:53:12,tunglsins er ekki slétt, einsleitt og með hárnákvæma kúlulögun 00:05:53:17,00:05:57:11,eins og margir heimspekingar halda 00:05:57:12,00:06:01:17,heldur ójafnt, hrjúft og þakið holum og nibbum 00:06:01:18,00:06:06:06,ekki ósvipað yfirborði jarðar. 00:06:11:14,00:06:15:08,Landslag með gígum, fjöllum og dölum. 00:06:15:08,00:06:18:08,Heimur áþekkur jörðinni okkar! 00:06:19:13,00:06:24:18,Fáeinum vikum síðar, í janúar 1610, skoðaði Galileó Júpíter. 00:06:24:18,00:06:28:14,Rétt hjá reikistjörnunni sá hann fjóra ljósdepla sem breyttu 00:06:28:16,00:06:32:24,stöðu sinni á himninum á hverri nóttu ásamt Júpíter. 00:06:33:00,00:06:37:22,Þetta var sem hægur, himneskur ballett tungla sem snerust umhverfis reikistjörnuna. 00:06:37:22,00:06:40:18,Ljósdeplarnir fjórir urðu síðar þekktir sem Galileitunglin 00:06:40:18,00:06:43:14,við Júpíter. 00:06:43:16,00:06:46:06,Hvað fleira uppgötvaði Galileó? 00:06:46:06,00:06:48:10,Kvartilaskipti Venusar! 00:06:48:12,00:06:51:22,Rétt eins og tunglið, vex Venus og minnkar frá mjórri sigð 00:06:51:24,00:06:54:06,upp í heila skífu og aftur til baka. 00:06:54:06,00:06:58:14,Furðuleg útskot á báðum hliðum Satúrnusar. 00:06:58:14,00:07:01:04,Svartir blettir á yfirborði sólarinnar. 00:07:01:06,00:07:03:12,Og að sjálfsögðu stjörnurnar. 00:07:03:12,00:07:06:04,Þúsundir þeirra, jafnvel milljónir. 00:07:06:04,00:07:09:08,Hver um sig of dauf til þess að sjást með berum augum. 00:07:09:10,00:07:13:22,Það var eins og augu mannkyns hefðu skyndilega opnast. 00:07:13:24,00:07:18:00,Fyrir utan beið alheimurinn könnunar. 00:07:23:10,00:07:27:20,Fréttir af sjónaukanum breiddust eins og eldur í sinu út um alla Evrópu. 00:07:27:20,00:07:32:02,Við hirð Rúdolfs II keisara í Prag bætti Jóhannes Kepler 00:07:32:04,00:07:34:20,hönnun tækisins. 00:07:34:20,00:07:38:20,Í Antwerpen teiknaði hollenski kortagerðarmaðurinn Michael van Langren 00:07:38:22,00:07:41:22,fyrstu áreiðanlegu kortin af tunglinu sem sýndu það sem hann hélt að væru 00:07:41:24,00:07:44:10,meginlönd og höf. 00:07:44:12,00:07:49:16,Ríkur bruggari í Póllandi, Jóhannes Hevelíus að nafni, smíðaði 00:07:49:16,00:07:53:05,risastóran sjónauka í stjörnustöð sinni í Gdansk. 00:07:53:06,00:07:57:21,Stjörnustöðin var svo stór að hún náði yfir þrjú húsþök! 00:07:59:04,00:08:02:06,En bestu tækin á þessum tíma voru sennilega smíðuð 00:08:02:07,00:08:05:09,af Christiaan Huygens í Hollandi. 00:08:05:10,00:08:11:02,Árið 1655 uppgötvaði Huygens Títan, stærsta tungl Satúrnusar. 00:08:11:03,00:08:15:04,Fáeinum árum síðar leiddu athuganir hans í ljós hringa Satúrnusar 00:08:15:04,00:08:20:08,sem Galileó hafði aldrei skilið. 00:08:20:09,00:08:24:15,Og síðast en ekki síst sá Huygens dökkar rákir og ljósar 00:08:24:16,00:08:27:09,pólhettur á Mars. 00:08:27:10,00:08:31:02,Gæti verið líf að finna á þessum fjarlæga og framandi hnetti? 00:08:31:03,00:08:35:06,Stjörnufræðingar velta ennþá þessari spurningu fyrir sér. 00:08:35:20,00:08:39:12,Fyrstu sjónaukarnir voru allir linsusjónaukar sem notuðu 00:08:39:13,00:08:42:16,linsur til þess að safna saman ljósi og beina því í einn punkt. 00:08:42:17,00:08:45:11,Seinna leystu speglar linsurnar af hólmi. 00:08:45:12,00:08:49:02,Fyrsti spegilsjónaukinn var smíðaður af Niccolò Zucchi 00:08:49:03,00:08:51:25,og síðar betrumbættur af Isaac Newton. 00:08:52:01,00:08:55:18,Á síðari hluta 18. aldar voru stærstu speglar í heiminum 00:08:55:19,00:08:59:14,smíðaðir af William Herschel, organista sem varð stjörnufræðingur 00:08:59:15,00:09:02:12,og starfaði ásamt systur sinni Caroline. 00:09:02:13,00:09:06:05,Í húsi þeirra í Bath í Englandi helltu systkinin rauðglóandi 00:09:06:06,00:09:09:21,málmbráð í mót og þegar hún hafði kólnað 00:09:09:22,00:09:15:11,slípuðu þau yfirborðið svo það gæti endurvarpað ljósi. 00:09:15:12,00:09:20:08,Herschel smíðaði yfir 400 sjónauka á ævi sinni. 00:09:24:11,00:09:28:09,Stærsti sjónaukinn var svo stór að hann þurfti fjóra aðstoðarmenn 00:09:28:10,00:09:31:14,til þess að toga í mismunandi reipi, hjól og talíur sem voru 00:09:31:15,00:09:36:00,nauðsynleg til að fylgja eftir hreyfingum stjarnanna á himninum 00:09:36:01,00:09:39:11,en hann færist að sjálfsögðu til vegna snúnings jarðarinnar. 00:09:39:12,00:09:43:02,Herschel var eins konar könnuður, hann skannaði himininn og 00:09:43:03,00:09:46:17,skráði hjá sér hundruð nýrra geimþoka og tvístirna. 00:09:46:18,00:09:50:07,Hann uppgötvaði einnig að Vetrarbrautin hlyti að vera flöt skífa. 00:09:50:08,00:09:54:03,Hann mældi jafnvel færslu sólkerfisins innan skífunnar 00:09:54:04,00:09:58:20,með því að fylgjast með innbyrðis hreyfingum stjarnanna og plánetanna. 00:09:58:21,00:10:06:09,Þann 13. mars 1781 uppgötvaði hann nýja reikistjörnu - Úranus. 00:10:06:10,00:10:10:16,Það liðu meira en 200 ár þangað til NASA geimfarið Voyager 2 00:10:10:17,00:10:15:21,sendi stjörnufræðingum fyrstu nærmyndirnar af þessari fjarlægu reikistjörnu. 00:10:16:18,00:10:21:06,Í frjósömum héruðum Mið-Írlands smíðaði William Parsons 00:10:21:07,00:10:26:13,þriðji lávarðurinn af Rosse, stærsta sjónaukann á 19. öld. 00:10:26:14,00:10:30:13,Með málmspegli sem spannaði 1,8 metra varð tröllaukinn 00:10:30:14,00:10:35:06,sjónaukinn þekktur undir nafninu „Skrímslið frá Parsontown“. 00:10:35:07,00:10:39:08,Af og til á heiðskírum tungllausum nóttum sat lávarðurinn við sjónglerið 00:10:39:10,00:10:44:10,og sigldi á vit ævintýra í alheiminum. 00:10:45:06,00:10:50:04,Til Óríonþokunnar sem nú er þekkt stjörnuverksmiðja. 00:10:50:06,00:10:55:22,Áfram til hinnar dularfullu Krabbaþoku sem er leifar sprengistjörnu. 00:10:55:23,00:10:57:22,Og Svelgurinn? 00:10:57:23,00:11:02:13,Rosse lávarður var fyrstur til þess að sjá stórfenglega þyrillögun vetrarbrautarinnar. 00:11:02:14,00:11:08:10,Vetrarbraut, rétt eins og okkar, með margbrotnum dökkum og glóandi gasskýjum 00:11:08:11,00:11:12:10,milljörðum mismunandi stjarna, og hver veit - 00:11:12:11,00:11:16:13,jafnvel með reikistjörnur eins og jörðina. 00:11:18:21,00:11:24:22,Sjónaukinn var orðinn fleyið sem flutti okkur áfram við könnun alheimsins.