$FontName = Arial $FontSize = 30 //Character attributes (global) $Bold = FALSE $UnderLined = FALSE $Italic = FALSE //Position Control $HorzAlign = Center $VertAlign = Bottom $XOffset = 0 $YOffset = 0 //Contrast Control $TextContrast = 15 $Outline1Contrast = 8 $Outline2Contrast = 15 $BackgroundContrast = 0 //Effects Control $ForceDisplay = FALSE $FadeIn = 0 $FadeOut = 0 //Other Controls $TapeOffset = FALSE //$SetFilePathToken = <<:>> //Subtitles 00:00:00:10,00:00:04:20,2. Stærra er betra 00:00:06:18,00:00:09:04,Á næturnar aðlagast augun myrkrinu. 00:00:09:05,00:00:13:08,Sjáöldrin breikka og hleypa þannig meira ljósi inn í augun. 00:00:13:09,00:00:18:14,Það þýðir að þú getur séð daufari fyrirbæri og daufari stjörnur. 00:00:18:15,00:00:22:10,Ímyndaðu þér að sjáöldrin væru einn metri í þvermál. 00:00:22:11,00:00:26:16,Þú litir eflaust skringilega út en þú hefðir einnig yfirnáttúrulega sjón! 00:00:26:17,00:00:30:03,Sjónaukinn virkar á sama hátt. 00:00:32:14,00:00:35:08,Sjónauki er eins og trekt. 00:00:35:09,00:00:40:23,Safnlinsan eða -spegillinn safnar ljósi frá stjörnunum og beinir því að auga þínu. 00:00:43:18,00:00:48:12,Því stærri sem linsan eða spegillinn er, þeim mun daufari fyrirbæri er unnt að sjá. 00:00:48:13,00:00:51:10,Stærðin skiptir því öllu máli. 00:00:51:11,00:00:54:02,En hversu stóran sjónauka er hægt að smíða? 00:00:54:03,00:00:57:03,Ekkert allt of stóran ef það er linsusjónauki. 00:01:00:03,00:01:03:10,Ljósið þarf að ferðast í gegnum safnlinsuna. 00:01:03:11,00:01:06:19,En aðeins er hægt að styðja við brún linsunnar. 00:01:06:20,00:01:12:15,Ef linsan er of stór verður hún líka of þung og fer að aflagast undan eigin þunga. 00:01:12:16,00:01:16:08,Það þýðir að myndin bjagast. 00:01:18:01,00:01:25:01,Stærsti linsusjónauki sögunnar var smíðaður árið 1897 við Yerkes stjörnustöðina skammt frá Chicago. 00:01:25:02,00:01:28:05,Safnlinsan var rétt rúmur metri að þvermáli. 00:01:28:06,00:01:32:20,En sjónaukapípan var hvorki meira né minna en 18 metra löng. 00:01:32:21,00:01:39:10,Þegar smíði Yerkessjónaukans lauk höfðu hönnuðir linsusjónauka komist á endastöð. 00:01:39:11,00:01:41:14,Viltu enn stærri sjónauka? 00:01:41:15,00:01:43:13,Þá þarftu að nota spegla. 00:01:47:18,00:01:53:19,Í spegilsjónauka endurvarpar spegill ljósinu í stað þess að það ferðist í gegnum linsu. 00:01:53:20,00:02:00:03,Það þýðir að spegillinn getur verið miklu þynnri en linsa og hægt er að styðja við þá aftan frá. 00:02:00:04,00:02:05:08,Þannig er hægt að smíða miklu stærri spegla en linsur. 00:02:06:07,00:02:10:10,Stórir speglar hófu innreið sína í Suður-Kaliforníu fyrir einni öld. 00:02:10:11,00:02:15:15,Í þá daga var Wilsonfjall fjarri mannabyggðum í víðernum San Gabriel fjallgarðsins. 00:02:15:16,00:02:19:20,Himinninn var heiður og næturnar dimmar. 00:02:19:21,00:02:24:09,Á þessum stað reisti George Ellery Hale fyrstur manna 1,5 metra breiðan sjónauka. 00:02:24:10,00:02:29:02,Sjónaukinn var smærri en sjónauki Rosse lávarðs en af mun meiri gæðum. 00:02:29:03,00:02:32:22,Og miklu betur staðsettur. 00:02:32:23,00:02:38:09,Hale sannfærði viðskiptajöfurinn John Hooker um að fjármagna 2,5 metra breiðan sjónauka. 00:02:38:10,00:02:43:06,Mörg tonn af gleri og stáli voru ferjuð upp Wilsonfjall. 00:02:43:07,00:02:46:18,Smíði Hooker-sjónaukans lauk árið 1917. 00:02:46:19,00:02:50:24,Hann var stærsti sjónauki í heimi um þrjátíu ára skeið. 00:02:51:00,00:02:56:03,Eins og risastór fallbyssa sem beið þess að ráðast á alheiminn. 00:02:59:04,00:03:01:20,Og það gerði hann svo sannarlega. 00:03:01:21,00:03:04:23,Auk geigvænlegrar stærðar nýja stjörnusjónaukans kom fram 00:03:04:24,00:03:07:23,ný tækni sem umbylti því hvernig myndirnar voru skoðaðar. 00:03:07:24,00:03:11:12,Stjörnufræðingar þurftu ekki lengur að gægjast í gegnum augngler nýja risans. 00:03:11:13,00:03:16:16,Þess í stað var ljósinu safnað á ljósmyndaplötur í nokkrar klukkustundir í senn. 00:03:16:17,00:03:21:13,Aldrei áður hafði nokkur gægst svo langt út í alheiminn. 00:03:21:14,00:03:25:21,Þyrilþokur reyndust uppfullar af ótal stjörnum. 00:03:25:22,00:03:30:07,Voru þær hugsanlega víðfeðm stjörnukerfi líkt og Vetrarbrautin okkar? 00:03:30:08,00:03:34:12,Í Andrómeduvetrarbrautinni uppgötvaði Edwin Hubble sérstaka tegund stjörnu 00:03:34:13,00:03:38:02,sem breytir birtu sinni lotubundið. 00:03:38:03,00:03:42:11,Athuganir Hubbles gerðu honum kleift að áætla fjarlægðina til Andrómedu: 00:03:42:12,00:03:46:17,næstum milljón ljósár. 00:03:46:18,00:03:53:11,Þyrilþokur eins og Andrómeda, voru greinilega stakar vetrarbrautir. 00:03:55:03,00:03:58:01,En fleiri ótrúlegar staðreyndir áttu eftir að koma í ljós. 00:03:58:02,00:04:02:18,Flestar vetrarbrautirnar reyndust vera að fjarlægast Vetrarbrautina okkar. 00:04:02:19,00:04:08:08,Á Wilsonfjalli uppgötvaði Hubble að nálægar vetrarbrautir fjarlægðust rólega 00:04:08:09,00:04:13:05,á meðan fjarlægari vetrarbrautir þeyttust burt með miklu meiri hraða. 00:04:13:06,00:04:14:11,Hver var niðurstaðan? 00:04:14:12,00:04:17:06,Alheimurinn var að þenjast út. 00:04:17:07,00:04:24:03,Hooker sjónaukinn gaf vísindamönnum færi á merkustu uppgötvun í stjörnufræði á 20. öld. 00:04:26:19,00:04:31:08,Þökk sé sjónaukanum höfum við rakið þróunarsögu alheimsins. 00:04:31:09,00:04:35:15,Fyrir um 14 milljörðum ára varð alheimurinn til 00:04:35:16,00:04:39:23,í gríðarlegri sprengingu tíma og rúms, efnis og orku sem sem kallast 00:04:39:24,00:04:42:07,miklihvellur. 00:04:42:08,00:04:48:04,Örsmáar skammtaöldur urðu að stórum flekkum í frumsúpunni. 00:04:48:05,00:04:50:22,Úr þessum flekkum mynduðust vetrarbrautir 00:04:50:23,00:04:54:13,af öllum stærðum og gerðum. 00:04:57:06,00:05:01:03,Kjarnasamruni í kjörnum stjarna framleiddi ný atóm. 00:05:01:04,00:05:05:14,Kolefni, súrefni, járn, gull. 00:05:05:15,00:05:10:08,Sprengistjörnur þeyttu þessum þungu frumefnum aftur út í geiminn. 00:05:10:09,00:05:13:20,Hráefni til myndunar nýrra stjarna. 00:05:13:21,00:05:15:13,Og reikistjarna! 00:05:17:13,00:05:25:15,Einhvern tíma, einhvers staðar, einhvern veginn þróuðust einföld lífræn efnasambönd í lífverur. 00:05:25:16,00:05:31:07,Lífið er eitt af kraftaverkunum í þróunarsögu alheimsins. 00:05:31:08,00:05:33:15,Við erum stjörnuryk. 00:05:33:16,00:05:37:18,Það er mikilfengleg sýn og stórbrotin saga 00:05:37:19,00:05:41:22,sem sjónaukinn hefur fært okkur. 00:05:41:23,00:05:46:09,Ímyndaðu þér að án sjónaukans myndum við einungis þekkja sex reikistjörnur 00:05:46:10,00:05:48:22,eitt tungl og fáeinar þúsundir stjarna. 00:05:48:23,00:05:53:03,Stjörnufræðin væri enn að slíta barnsskónum. 00:05:54:08,00:05:58:04,Rétt eins og týndir fjársjóðir hafa fjarlægir staðir í alheiminum laðað fram 00:05:58:05,00:06:00:18,ævintýraþrána í okkur. 00:06:00:19,00:06:06:04,Prinsar og pótintátar, stjórnmálamenn jafnt sem auðmenn, hafa á sama hátt og vísindamenn 00:06:06:05,00:06:10:23,fundið fyrir aðdráttarafli ókunnra djúpa himingeimsins og með sjóntækin 00:06:10:24,00:06:16:03,í farteskinu hefur heimur þekkingarinnar vaxið geysihratt. 00:06:30:11,00:06:33:09,Hinsti draumur George Ellery Hale var 00:06:33:10,00:06:37:16,að reisa tvöfalt stærri sjónauka en fyrirrennarann. 00:06:37:17,00:06:41:15,Hér gefur að líta drottningu stjörnufræði 20. aldar. 00:06:41:16,00:06:46:15,Fimm metra breiði Hale sjónaukinn á Palomarfjalli. 00:06:46:16,00:06:51:06,Yfir fimm hundruð tonna ferlíki jafnvægisstillt af ítrustu nákvæmni 00:06:51:07,00:06:55:09,sem hreyfist mjúklega líkt og ballettdansmær. 00:06:55:10,00:07:00:23,40 tonna spegillinn sýnir okkur stjörnur sem eru 40 milljón sinnum daufari en augað fær greint. 00:07:00:24,00:07:05:23,Lokið var við smíði Hale sjónaukans 1948 sem veitti okkur áður óþekkta sýn til reikistjarnanna 00:07:05:24,00:07:09:13,stjörnuþyrpinga, geimþoka og vetrarbrauta. 00:07:11:18,00:07:15:17,Gasrisinn Júpíter og fjöldamörg tungl hans. 00:07:15:18,00:07:19:19,Hin stórglæsilega Logaþoka. 00:07:19:20,00:07:24:23,Daufar gasslæður Sverðþokunnar í Óríon. 00:07:30:13,00:07:32:20,En gætu sjónaukarnir orðið enn stærri? 00:07:32:21,00:07:36:23,Seint á áttunda áratug tuttugustu aldar reyndu sovéskir stjörnufræðingar fyrir sér í þessu. 00:07:36:24,00:07:41:08,Hátt uppi í Kákasusfjöllum reistu þeir Bolshoi Teleskop Azimutalnyi sjónaukann 00:07:41:09,00:07:45:15,sem skartaði sex metra breiðum spegli. 00:07:45:16,00:07:48:08,Sá sjónauki stóðst því miður aldrei væntingar. 00:07:48:09,00:07:52:11,Hann var einfaldlega of stór, of dýr og of erfiður í notkun. 00:07:52:12,00:07:55:17,Þurftu sjónaukahönnuðir þá að leggja árar í bát? 00:07:55:18,00:07:59:05,Þurftu þeir að segja skilið við draum sinn um að smíða stærri sjónauka? 00:07:59:06,00:08:02:17,Hafði saga sjónaukans hlotið ótímabæran endi? 00:08:02:18,00:08:04:02,Að sjálfsögðu ekki. 00:08:04:03,00:08:07:05,Í dag höfum við 10 metra sjónauka að störfum. 00:08:07:06,00:08:09:21,Enn stærri sjónaukar eru á teikniborðinu. 00:08:09:22,00:08:11:10,Hvað leysti málið? 00:08:11:11,00:08:13:08,Tækninýjungar.