//Font select and font size $FontName = Arial $FontSize = 30 //Character attributes (global) $Bold = FALSE $UnderLined = FALSE $Italic = FALSE //Position Control $HorzAlign = Center $VertAlign = Bottom $XOffset = 0 $YOffset = 0 //Contrast Control $TextContrast = 15 $Outline1Contrast = 8 $Outline2Contrast = 15 $BackgroundContrast = 0 //Effects Control $ForceDisplay = FALSE $FadeIn = 0 $FadeOut = 0 //Other Controls $TapeOffset = FALSE //$SetFilePathToken = <<:>> //Subtitles 00:00:00:00,00:00:04:19,3. Tæknin kemur til bjargar 00:00:04:25,00:00:08:20,Rétt eins og bílar líta ekki lengur út eins og Ford T módel þá eru nútíma 00:00:08:21,00:00:12:07,stjörnusjónaukar mjög frábrugðnir forverum sínum 00:00:12:08,00:00:14:17,eins og 5 metra Halesjónaukanum. 00:00:14:18,00:00:17:22,Sjónaukastæðin eru til dæmis miklu minni. 00:00:17:23,00:00:21:21,Gamla gerðin er pólstillt þar sem annar ásanna 00:00:21:22,00:00:25:18,snýr alltaf samsíða snúningsási jarðarinnar. 00:00:25:19,00:00:29:12,Til þess að fylgja eftir hreyfingu himinsins varð sjónaukinn einfaldlega 00:00:29:13,00:00:34:05,að snúast um ásinn á sama hraða og jörðin snýst um sjálfa sig. 00:00:34:06,00:00:37:04,Einfalt en mjög rúmfrekt. 00:00:37:05,00:00:42:01,Nú tíðkast lóðstillt stæði sem eru miklu umfangsminni. 00:00:42:02,00:00:46:11,Á svona stæði er sjónaukanum miðað upp í himininn líkt og fallbyssu. 00:00:46:12,00:00:51:06,Einungis þarf að velja afstöðuna og hæðina til þess að komast af stað. 00:00:51:07,00:00:54:16,Vandinn er að fylgja eftir hreyfingu himinsins. 00:00:54:17,00:01:00:06,Sjónaukinn þarf í raun að snúast um báða ásana á mismunandi hraða. 00:01:00:07,00:01:06:18,Þetta varð í raun fyrst mögulegt þegar sjónaukar urðu tölvustýrðir. 00:01:06:19,00:01:08:21,Það er ódýrara að smíða minna sjónaukastæði. 00:01:08:22,00:01:13:13,Það þarfnast minni hvelfingar sem lækkar kostnaðinn enn frekar 00:01:13:14,00:01:16:08,og bætir myndgæðin. 00:01:16:09,00:01:19:20,Skoðum til dæmis Keck tvíburasjónaukana á Hawaii. 00:01:19:21,00:01:22:15,Þrátt fyrir að 10 metra breiðir speglarnir séu tvöfalt breiðari en 00:01:22:16,00:01:26:11,spegill Hale-sjónaukans passa þeir samt inn í minni sjónaukahvelfingar 00:01:26:12,00:01:29:06,en hvelfinguna á Palomar fjalli. 00:01:31:01,00:01:33:11,Sjónaukaspeglar hafa einnig tekið breytingum 00:01:33:12,00:01:35:03,Áður fyrr voru þeir þykkir og þungir. 00:01:35:04,00:01:37:21,Nú eru þeir þunnir og léttir. 00:01:37:22,00:01:42:20,Speglar sem eru margir metrar í þvermál eru steyptir við snúning í risastórum ofnum. 00:01:42:21,00:01:46:08,Samt eru þeir innan við 20 sentimetra þykkir. 00:01:46:09,00:01:48:25,Flókið burðarvirki kemur í veg fyrir að þunnur spegillinn 00:01:49:01,00:01:51:05,falli saman undan eigin þunga. 00:01:51:06,00:01:55:03,Tölvustýrðir stimplar og stýribúnaður hjálpa einnig til við að halda speglinum 00:01:55:04,00:01:56:21,í fullkominni fleygbogalögun. 00:01:59:09,00:02:01:13,Þetta kerfi er nefnt aðlögunarsjóntækni. 00:02:01:14,00:02:05:21,Hugmyndin er að vinna á móti og leiðrétta alla aflögun aðalspegilsins 00:02:05:22,00:02:10:14,sem á sér stað vegna þyngdarafls, vinds og hitabreytinga. 00:02:10:15,00:02:14:06,Þunnur spegill er einnig mun léttari en þykkur. 00:02:14:07,00:02:17:11,Þetta þýðir að burðarvirkið, þar á meðal sjónaukastæðið 00:02:17:13,00:02:19:11,getur verið mun nettara og léttara. 00:02:19:12,00:02:21:14,Og ódýrara! 00:02:21:15,00:02:24:09,Þetta er hinn svonefndi 3,6 metra breiði New Technology sjónauki 00:02:24:10,00:02:27:19,sem evrópskir stjörnufræðingar létu smíða í lok níunda áratugarins. 00:02:27:20,00:02:30:21,Í honum voru prófaðar alls konar tækninýjungar 00:02:30:22,00:02:32:03,í sjónaukasmíði. 00:02:32:04,00:02:36:25,Sjónaukabyggingin var meira að segja gjörólík dæmigerðum sjónaukahvelfingum. 00:02:37:01,00:02:40:06,New Technology sjónaukinn var mjög vel heppnaður. 00:02:40:07,00:02:43:07,Það var kominn tími á það að rjúfa sex metra múrinn. 00:02:43:14,00:02:47:10,Stjörnustöðin á Mauna Kea er á hæsta fjallinu í Kyrrahafinu 00:02:47:11,00:02:50:24,4200 metra yfir sjávarmáli. 00:02:52:24,00:02:57:03,Ferðamenn á ströndum Hawaii sleikja sólina og fara á brimbretti. 00:02:57:04,00:03:00:13,Hátt uppi í fjöllum þurfa stjörnufræðingar hins vegar að þola kulda 00:03:00:14,00:03:07:04,og háloftaveiki þegar þeir reyna að afhjúpa leyndardóma alheimsins. 00:03:07:05,00:03:10:03,Keck sjónaukarnir eru meðal stærstu sjónauka í heiminum. 00:03:10:04,00:03:15:03,Speglar þeirra eru 10 metrar í þvermál og næfurþunnir. 00:03:15:04,00:03:20:01,36 sexhyrndum speglum er raðað upp eins og gólfflísum 00:03:20:02,00:03:23:12,og stjórnað af mikilli nákvæmni. 00:03:23:13,00:03:27:05,Þetta eru réttnefndir risar sem er eingöngu ætlað að skoða himingeiminn. 00:03:27:06,00:03:30:03,Sannkallaðar dómkirkjur vísindanna. 00:03:30:04,00:03:32:15,Nótt skellur á Mauna Kea. 00:03:32:16,00:03:37:18,Keck sjónaukarnir byrja að safna ljóseindum frá fjarlægum stöðum í alheiminum. 00:03:37:19,00:03:40:13,Speglar tvíburasjónaukanna sameinast og verða stærri 00:03:40:14,00:03:43:11,en allir sjónaukar sem áður höfðu verið smíðaðir. 00:03:43:12,00:03:46:09,Hvað sést í kvöld? 00:03:50:16,00:03:55:13,Vetrarbrautir sem rekast saman í milljarða ljósára fjarlægð? 00:03:55:14,00:04:01:08,Stjarna í andarslitrunum sem myndar hringþoku? 00:04:01:09,00:04:07:01,Ef til vill reikistjarna í öðru sólkerfi þar sem líf gæti verið að finna? 00:04:07:02,00:04:11:23,Á Cerro Paranal í Atacama eyðimörkinni í Chile - þurrasta stað í heimi - 00:04:11:24,00:04:16:01,er að finna langstærsta stjörnufræðitæki sem smíðað hefur verið: 00:04:16:02,00:04:19:14,Europian Very Large Telescope. 00:04:32:04,00:04:35:13,Hann er í raun samsettur úr fjórum sjónaukum. 00:04:35:14,00:04:38:19,Hver um sig er með 8,2 metra breiðan spegil. 00:04:38:20,00:04:40:03,Antu. 00:04:40:04,00:04:41:06,Kueyen. 00:04:41:07,00:04:42:08,Melipal. 00:04:42:09,00:04:43:19,Yepun. 00:04:43:20,00:04:49:11,Þetta eru orð Mapuche þjóðflokksins yfir sólina, tunglið, Suðurkrossinn og Venus. 00:04:49:12,00:04:53:20,Speglarnir voru mótaðir í Þýskalandi, slípaðir í Frakklandi, sendir til Chile 00:04:53:21,00:04:57:06,og fluttir í hægagangi yfir eyðimörkina. 00:04:57:07,00:05:00:24,Við sólsetur eru hvelfingar sjónaukans opnaðar. 00:05:01:00,00:05:04:14,Ljósi frá stjörnum rignir niður á spegla sjónaukans. 00:05:05:06,00:05:08:02,Gerðar eru nýjar uppgötvanir. 00:05:11:22,00:05:14:04,Leisigeisli stingst upp í næturhimininn. 00:05:14:05,00:05:16:17,Hann varpar gervistjörnu upp í lofthjúpinn 00:05:16:18,00:05:19:21,90 km yfir höfði okkar. 00:05:19:22,00:05:22:23,Skynjarar mæla hvernig ljós gervistjörnunnar bjagast 00:05:22:24,00:05:25:03,vegna ókyrrðar í andrúmsloftinu. 00:05:25:04,00:05:28:24,Hraðvirkar tölvur segja því næst til um hvernig sveigjanlegur spegillinn þarf að 00:05:29:00,00:05:31:20,breyta lögun sinni til þess að leiðrétta bjögunina. 00:05:31:21,00:05:34:24,Í raun stöðvar hann blik stjarnanna. 00:05:35:00,00:05:38:15,Þetta kallast aðlögunarsjóntækni og er helsta galdrabrella 00:05:38:16,00:05:40:08,nútíma stjörnufræði. 00:05:40:09,00:05:44:21,Án hennar væri útsýn okkar til himingeimsins í móðu vegna lofthjúpsins. 00:05:44:22,00:05:48:22,Með henni verða myndirnar hins vegar hnífskarpar. 00:05:51:11,00:05:55:12,Annað galdratæki er svonefnd víxlmæling. 00:05:55:13,00:05:59:09,Hugmyndin gengur út á að beina ljósi frá tveimur aðskildum sjónaukum og 00:05:59:10,00:06:02:16,safna því saman í einn punkt en varðveita 00:06:02:17,00:06:05:08,bilið á milli ljósbylgjanna. 00:06:05:09,00:06:09:04,Ef þetta er framkvæmt af nógu mikilli nákvæmni verður útkoman sú að sjónaukarnir tveir 00:06:09:05,00:06:12:15,virka eins og þeir væru hlutar af einum risastórum spegli 00:06:12:16,00:06:15:23,sem væri jafnbreiður og fjarlægðin á milli þeirra. 00:06:15:24,00:06:20:01,Í raun og veru gefur víxmæling sjónaukanum arnarsjón. 00:06:20:02,00:06:23:15,Hún veldur því að litlir sjónaukar geta greint smáatriði 00:06:23:16,00:06:28:11,sem mundu einungis sjást í miklu stærri sjónauka. 00:06:28:12,00:06:31:15,Keck tvíburasjónaukarnir á Mauna Kea eru reglulega samtengdir 00:06:31:16,00:06:33:13,sem víxlmælir. 00:06:33:14,00:06:37:11,Í Evrópska risasjónaukanum er hægt að tengja alla fjóra sjónaukana saman. 00:06:37:12,00:06:40:19,Til viðbótar við þá eru nokkrir smærri sjónaukar í kring sem geta 00:06:40:20,00:06:44:22,slegist í hópinn til þess að skerpa myndina enn frekar. 00:06:45:20,00:06:49:10,Fleiri stóra sjónauka er að finna um alla heim. 00:06:49:11,00:06:53:12,Subaru og Norður-Gemini á Mauna Kea. 00:06:53:13,00:06:58:06,Suður-Gemini og Magellan sjónaukarnir í Chile. 00:06:58:07,00:07:02:07,Stóri tvíspeglasjónaukinn í Arizona. 00:07:04:04,00:07:06:20,Þeir eru allir byggðir á bestu stöðum sem hægt er að finna. 00:07:06:20,00:07:09:18,Hæð og þurrt loft, tærleiki og myrkur. 00:07:09:20,00:07:12:16,Augu þeirra eru á stærð við sundlaugar. 00:07:12:18,00:07:16:10,Allir eru þeir búnir aðlögunarsjóntækni til þess að vinna gegn truflandi 00:07:16:10,00:07:18:02,áhrifum lofthjúpsins. 00:07:18:04,00:07:21:24,Stundum ná þeir upplausn á við risavaxinn sjónauka 00:07:22:00,00:07:24:16,þökk sé víxlmælingum. 00:07:25:16,00:07:27:20,Þetta er það sem þeir hafa sýnt okkur. 00:07:27:22,00:07:29:10,Reikistjörnur. 00:07:32:14,00:07:34:06,Geimþokur. 00:07:35:08,00:07:39:24,Raunverulegar stærðir og bjagaðar skífur nokkurra stjarna. 00:07:39:24,00:07:43:04,Kalda reikistjörnu sem snýst umhverfis brúnan dverg. 00:07:43:04,00:07:47:12,Risastjörnur sem þeytast í kringum miðjuna á Vetrarbrautinni okkar 00:07:47:14,00:07:52:18,vegna þyngdaráhrifa frá risasvartholi. 00:07:52:20,00:07:56:10,Við höfum komist talsvert áleiðis síðan á dögum Galileós.