//Font select and font size $FontName = Arial $FontSize = 30 //Character attributes (global) $Bold = FALSE $UnderLined = FALSE $Italic = FALSE //Position Control $HorzAlign = Center $VertAlign = Bottom $XOffset = 0 $YOffset = 0 //Contrast Control $TextContrast = 15 $Outline1Contrast = 8 $Outline2Contrast = 15 $BackgroundContrast = 0 //Effects Control $ForceDisplay = FALSE $FadeIn = 0 $FadeOut = 0 //Other Controls $TapeOffset = FALSE //$SetFilePathToken = <<:>> //Subtitles 00:00:00:00,00:00:04:14,6. Handan jarðarinnar 00:00:06:13,00:00:08:10,Hubble geimsjónaukinn. 00:00:08:11,00:00:11:09,Langþekktasti sjónauki sögunnar. 00:00:11:10,00:00:12:20,Og skal engan undra. 00:00:12:21,00:00:16:14,Hubble sjónaukinn hefur gerbreytt mörgum sviðum stjarnvísinda. 00:00:16:15,00:00:20:01,Raunar er spegill Hubble sjónaukans heldur lítill á nútímamælikvarða. 00:00:20:02,00:00:23:01,Hann er aðeins um 2,4 metrar í þvermál. 00:00:23:02,00:00:26:16,En staðsetning hans er einfaldlega einstök. 00:00:26:17,00:00:30:09,Handan við þokukenndan lofthjúpinn hefur hann óvenju 00:00:30:10,00:00:32:15,skarpa sýn á heiminn. 00:00:32:16,00:00:37:09,En auk þess getur Hubble sjónaukinn séð útfjólublátt og innrautt ljós. 00:00:37:10,00:00:40:12,Sjónaukar niðri á jörðu geta ekki séð þessa geislun þar sem 00:00:40:13,00:00:43:22,andrúmsloftið skyggir á hana. 00:00:43:23,00:00:47:22,Myndavélar og litrófsmælar, sumir á stærð við símaklefa 00:00:47:23,00:00:52:15,rannsaka í þaula og skrásetja ljós frá fjarlægum lendum alheimsins. 00:00:52:16,00:00:57:08,Líkt og sjónaukar á jörðu niðri er Hubble sjónaukinn uppfærður af og til. 00:00:57:09,00:01:00:19,Geimfarar þjónusta hann í geimgöngum. 00:01:00:20,00:01:02:11,Laskaðir hlutar eru endurnýjaðir. 00:01:02:12,00:01:05:00,Og eldri tæki eru leyst af hólmi með nýrri og 00:01:05:01,00:01:07:20,nútímalegri tækni. 00:01:07:21,00:01:11:07,Hubble sjónaukinn er orðinn að aflstöð stjörnuathugana. 00:01:11:08,00:01:15:06,Og hann hefur gjörbreytt skilningi okkar á alheiminum. 00:01:17:20,00:01:22:20,Með haukfránni sjón, hefur Hubble sjónaukinn fylgst með árstíðaskiptum á Mars 00:01:23:22,00:01:26:20,árekstri halastjörnu við Júpíter 00:01:28:12,00:01:31:22,hringum Satúrnusar á rönd 00:01:34:22,00:01:38:10,og jafnvel yfirborði hins agnarsmáa Plútó. 00:01:38:11,00:01:44:08,Hann hefur afhjúpað æviferil stjarna, frá fæðingu þeirra og bernsku 00:01:44:14,00:01:50:14,í fóstri rykmettaðra gasskýja, allt til endaloka þeirra: 00:01:50:15,00:01:55:20,sem fíngerðra þoka sem þenjast hægt út í geiminn frá deyjandi stjörnum 00:01:55:22,00:02:02:24,eða sem ógurlegra sprengistjarna sem skína jafnvel skærar en vetrarbrautir. 00:02:03:00,00:02:06:24,Djúpt í Sverðþoku Óríons, sá Hubble sjónaukinn meira að segja fæðingarstað nýrra 00:02:07:00,00:02:12:02,sólkerfa: rykskífur umhverfis nýkviknaðar sólstjörnur sem gætu brátt 00:02:12:02,00:02:14:02,safnast saman í reikistjörnur. 00:02:14:04,00:02:18:08,Geimsjónaukinn hefur rannsakað þúsundir sólstjarna í gríðarstórum kúluþyrpingum 00:02:18:10,00:02:23:24,elstu stjörnueiningum alheimsins. 00:02:24:00,00:02:26:08,Og að sjálfsögðu vetrarbrautir. 00:02:26:10,00:02:29:24,Aldrei áður hafa stjörnufræðingar séð svo mörg smáatriði. 00:02:29:24,00:02:36:20,Mikilfenglegir þyrilarmar, rykský, ofsafengnir árekstrar. 00:02:39:00,00:02:43:12,Með löngum lýsingartíma á auðum svæðum himinhvelfingarinnar, komu í ljós 00:02:43:12,00:02:48:02,þúsundir daufra vetrarbrauta milljarða ljósára í burtu. 00:02:48:02,00:02:51:24,Ljóseindir sem lögðu af stað þegar heimurinn var enn mjög ungur. 00:02:52:00,00:02:56:10,Gluggi inn í fjarlæga fortíð sem varpar nýju ljósi á 00:02:56:10,00:02:59:14,alheim í sífelldri þróun. 00:03:00:04,00:03:02:22,Hubble sjónaukinn er ekki eini sjónaukinn í geimnum. 00:03:02:22,00:03:07:20,Þetta er Spitzer geimsjónauki NASA, skotið á loft í ágúst 2003. 00:03:07:22,00:03:11:18,Á vissan hátt er hann jafngildur Hubble sjónaukanum á innrauða sviðinu. 00:03:11:18,00:03:15:24,Spegill Spitzer sjónaukans er aðeins 85 sentímetrar í þvermál. 00:03:15:24,00:03:19:02,En sjónaukinn er í vari bak við hitaskjöld sem hlífir honum 00:03:19:04,00:03:20:12,fyrir sólinni. 00:03:20:12,00:03:25:04,Skynjarar hans eru faldir í loftþéttri flösku fylltri af helíumvökva. 00:03:25:04,00:03:28:02,Þar eru skynjararnir kældir niður í örfáar gráður 00:03:28:04,00:03:29:20,yfir alkuli. 00:03:29:22,00:03:33:14,Það gerir þá ofurnæma. 00:03:33:16,00:03:36:18,Spitzer hefur svipt hulunni af rykugum heimi. 00:03:36:18,00:03:40:14,Dökk, ógagnsæ rykský glóa í innrauðu ljósi, þegar þau hitna 00:03:40:16,00:03:42:14,innan frá. 00:03:42:14,00:03:46:18,Höggbylgjur frá árekstrum vetrarbrauta þyrla upp ryki í hringlaga svæði 00:03:46:18,00:03:51:12,og flóðkraftar mynda ný svæði umfangsmikillar stjörnumyndunar. 00:03:53:12,00:03:57:02,Ryk verður einnig til eftir endalok sólstjarna. 00:03:57:04,00:04:01:02,Spitzer sjónaukinn sýndi að stjörnuþokur og leifar sprengistjarna eru hlaðnar 00:04:01:04,00:04:06:08,rykögnum sem eru nauðsynlegar byggingareiningar seinni tíma reikistjarna. 00:04:06:10,00:04:10:02,Á öðrum bylgjulengdum innrauðs ljóss, getur Spitzer séð í gegnum rykský 00:04:10:04,00:04:15:18,og afhjúpað stjörnurnar inni í þeim, faldar í myrkum kjörnum skýjanna. 00:04:15:20,00:04:18:24,Loks hafa litrófsmælar geimsjónaukans rannsakað 00:04:18:24,00:04:22:22,andrúmsloft reikistjarna utan okkar sólkerfis - gasrisa eins og Júpíters 00:04:22:22,00:04:26:22,sem geysast umhverfis móðurstjörnur sínar á aðeins örfáum dögum. 00:04:28:16,00:04:30:22,En hvað með röntgengeisla og gammageisla? 00:04:30:22,00:04:33:14,Lofthjúpur jarðar stöðvar þá nánast alfarið. 00:04:33:16,00:04:37:04,Svo að án sjónauka í geimnum, væru stjörnufræðingar alveg blindir 00:04:37:04,00:04:40:02,gagnvart þessum tegundum geislunar. 00:04:41:16,00:04:45:02,Geimsjónaukar sem skoða röntgengeisla og gammageisla, afhjúpa hinn heita 00:04:45:02,00:04:49:20,orkuríka og hamslausa heim vetrarbrautaþyrpinga, svarthola 00:04:49:20,00:04:54:02,sprengistjarna og vetrarbrautaárekstra. 00:04:56:18,00:04:58:21,Það er þó afar erfitt að smíða þá. 00:04:58:22,00:05:02:11,Orkurík geislun smígur beint í gegnum venjulega spegla. 00:05:02:12,00:05:07:17,Röntgengeislum er aðeins hægt að safna með uppröðuðum spegilskeljum úr skíragulli. 00:05:07:18,00:05:11:03,Gammageislar eru svo rannsakaðir með nýtísku opmyndavélum 00:05:11:04,00:05:14:14,eða stöflum af sindurnemum sem gefa frá sér örstutta ljósblossa 00:05:14:15,00:05:17:17,þegar gammageisli fellur á þá. 00:05:18:24,00:05:23:03,Á tíunda áratugnum starfrækti NASA Compton gammageislagervitunglið. 00:05:23:04,00:05:26:07,Á þeim tíma, var það stærsta og umfangsmesta vísindagervitungl 00:05:26:08,00:05:27:22,sem hafði nokkurn tíma verið skotið upp. 00:05:27:23,00:05:31:03,Fullbúin rannsóknarstofa í eðlisfræði úti í geimnum. 00:05:31:04,00:05:34:12,Árið 2008 var Compton skipt út fyrir GLAST: 00:05:34:13,00:05:38:13,Stóra gammageisla-geimsjónaukann. 00:05:38:14,00:05:42:03,Hann mun rannsaka allt á háorkusviði heimsins frá hulduefni 00:05:42:04,00:05:44:13,til tifstjarna. 00:05:46:10,00:05:50:09,Á meðan hafa stjarnfræðingar tvo röntgensjónauka í geimnum. 00:05:50:10,00:05:55:10,Chandra röntgensjónaukinn frá NASA og XMM-Newton sjónaukinn frá ESA 00:05:55:11,00:05:59:12,rannsaka báðir heitustu svæði alheimsins. 00:06:01:25,00:06:05:17,Svona lítur himininn út á röntgensviðinu. 00:06:05:18,00:06:10:04,Útþöndu fyrirbærin eru gasský, hituð upp í milljónir gráða af 00:06:10:05,00:06:13:17,þrýstibylgjum í leifum sprengistjarna. 00:06:13:18,00:06:17:24,Björtu uppspretturnar eru röntgengeisla-tvístirni: nifteindastjörnur eða 00:06:17:25,00:06:21:16,svarthol sem soga til sín efni frá fylgistjörnu sinni. 00:06:21:17,00:06:25:07,Þetta heita, innfallandi gas gefur frá sér röntgengeislun. 00:06:25:08,00:06:29:14,Eins afhjúpa röntgensjónaukar gríðarlega umfangsmikil svarthol í 00:06:29:15,00:06:31:19,kjörnum fjarlægra vetrarbrauta. 00:06:31:20,00:06:35:20,Efni sem hringsnýst inn á við verður nógu heitt til að lýsa í röntgensviðinu 00:06:35:21,00:06:40:04,rétt áður en það fellur inn í svartholið og úr augsýn. 00:06:40:05,00:06:44:21,Heitt en þunnt gas fyllir einnig geiminn á milli vetrarbrauta 00:06:44:22,00:06:46:08,í vetrarbrautaþyrpingum. 00:06:46:09,00:06:50:06,Stundum verður þetta innra gas fyrir þrýstibylgjum og enn frekari upphitun 00:06:50:07,00:06:54:12,vegna árekstra og sameiningar vetrarbrautaþyrpinga. 00:06:54:13,00:06:58:19,Gammablossar eru jafnvel enn áhugaverðari sem orkumestu atburðir 00:06:58:20,00:07:00:15,í alheiminum. 00:07:00:16,00:07:04:23,Þetta eru hamfarasprengingar sem marka endalok gríðarþungra stjarna 00:07:04:24,00:07:06:19,sem snúast mjög hratt. 00:07:06:20,00:07:10:19,Á minna en einni sekúndu, losnar meiri orka úr læðingi en sólin okkar losar 00:07:10:20,00:07:13:19,á 10 milljörðum ára. 00:07:16:04,00:07:20:04,Hubble, Spitzer, Chandra, XMM-Newton og GLAST 00:07:20:05,00:07:22:15,eru allt fjölhæfir risar. 00:07:22:16,00:07:25:16,En sumir geimsjónaukar eru mun smærri og hafa miklu 00:07:25:17,00:07:27:06,einbeittari markmið. 00:07:27:07,00:07:29:07,Lítið til dæmis á COROT. 00:07:29:08,00:07:32:22,Þetta franska gervitungl er ætlað til rannsókna á stjörnuskjálftafræði og 00:07:32:23,00:07:34:22,reikistjörnum utan okkar sólkerfis. 00:07:34:23,00:07:39:06,Eða Swift gervitunglið frá NASA, sameiginleg röntgen- og gammageislarannsóknarstöð 00:07:39:07,00:07:43:18,hönnuð til að afhjúpa leyndardóma gammablossa. 00:07:43:19,00:07:48:04,Einnig er vert að geta WMAP, Wilkinson örbylgjukannans. 00:07:48:05,00:07:51:21,Eftir að hafa aðeins verið tvö ár í geimnum hafði hann kortlagt 00:07:51:22,00:07:55:07,bakgrunnsgeislunina með nákvæmni sem ekki hafði áður sést. 00:07:55:08,00:07:59:05,WMAP gaf heimsfræðingum bestu sýn til eins af elstu stigum 00:07:59:06,00:08:04:17,alheimsins, fyrir meira en 13 milljörðum ára. 00:08:04:18,00:08:07:16,Að opna himingeiminn hefur reynst ein 00:08:07:17,00:08:10:06,stórkostlegasta þróunin í sögu sjónaukans. 00:08:10:07,00:08:12:19,Hvað kemur næst?