Teikning af áætlaðri dreifingu hulduefnis í kringum vetrarbrautina okkar (merkt)
Þessi teikning sýnir vetrarbrautina okkar. Blái efnishjúpurinn í kringum vetrarbrautina sýnir áætlaða dreifingu á hulduefninu dularfulla sem fyrst var notað til að útskýra snúning vetrarbrautarinnar en er líka ómissandi þáttur í kenningum nútímans um myndun og þróun vetrarbrauta. Nýju mælingarnar sýna að magn hulduefnis á stóru svæði í kringum sólina er miklu minna en búist var við og benda til að nánast ekkert hulduefni sé í nágrenni okkar. Bláa hvelið sýnir staðsetningu sólar og umfang svæðisins sem rannsakað var en ekki nákvæma lögun þess.
Mynd/Myndskeið:ESO/L. Calçada
Um myndina
Auðkenni: | eso1217b |
Tungumál: | is |
Tegund: | Uppdráttur |
Útgáfudagur: | Apr 18, 2012, 16:00 CEST |
Tengdar fréttatilkynningar: | eso1217 |
Stærð: | 4000 x 2250 px |
Um fyrirbærið
Nafn: | Dark Matter, Milky Way |
Tegund: | Milky Way Unspecified : Cosmology : Phenomenon : Dark Matter |
Myndasnið