Teikning listamanns af snælínum umhverfis TW Hydrae
Teikning listamanns af snælínu umhverfis TW Hydrae sem sýnir rykagnir hjúpaðar vatnsís (4,5–30 stjarnfræðieiningar, blátt) og agnir þaktar kolmónoxíðís í ytri skífunni (>30 stjarnfræðieiningar, grænt). Mörkin á milli bláu og grænu litanna markar snælínu kolmónoxíðs. Snælínan hjálpar rykögnum að festast saman vegna hríms en það er nauðsynlegt fyrir myndun reikistjarna og halastjarna. Mismunandi efnasambönd hafa mismunandi frostmörk svo mismunandi snælínur sjást í mismikilli fjarlægð frá stjörnunni.
Mynd/Myndskeið:B. Saxton & A. Angelich/NRAO/AUI/NSF/ALMA (ESO/NAOJ/NRAO)
Um myndina
Auðkenni: | eso1333a |
Tungumál: | is |
Tegund: | Uppdráttur |
Útgáfudagur: | Júl 18, 2013, 20:00 CEST |
Tengdar fréttatilkynningar: | eso1333 |
Stærð: | 1500 x 1800 px |
Um fyrirbærið
Bakgrunnsmynd