Tölvubúnaður ESO í gegnum tíðina
Þessi mynd var tekin árið 1974 í skrifstofum ESO í Santiago í Chile en á henni sést Albrecht með blýant í hönd að skoða kóða fyrir framan fjarrita. Hann er þarna að vinna við hugbúnað fyrir Spectrum Scanner mælitækið á eins metra sjónauka ESO í La Silla stjörnustöðinni. Í Santiago voru gögnin unnin með Hewlett Packard 2116 mínítölvu sem sjá má á bakvið prentarann. Í þessari stóru tölvu var einn örgjörvi og hvorki meira né minna en 16 kílóbæta segulkjarnaminni (!) og voru niðurstöðurnar geymdar á segulbandi sem stjörnufræðingarnir unnu svo frekar í tölvubúnaði sinna stofnana. Til að ráða við skrár sem voru stærri en minni tölvunnar þróaði Albrecht sýndarminniskerfi sem hann lagði til hugbúnaðarmiðstöðvar Hewlett Packard.
Mynd/Myndskeið:ESO
Um myndina
Auðkenni: | potw1223a |
Tungumál: | is |
Tegund: | Ljósmynd |
Útgáfudagur: | Jún 4, 2012, 10:00 CEST |
Stærð: | 5598 x 3744 px |
Um fyrirbærið
Nafn: | European Southern Observatory, Historical Image |
Tegund: | Unspecified : People : Scientist |
Myndasnið
Bakgrunnsmynd